Ársfundur Lífeyrissjóðs Vestfirðinga 2010 verður haldinn á Hótel Ísafirði fimmtudaginn 13. maí n.k. kl. 12.00.
Dagskrá fundarins:
- Skýrsla stjórnar.
- Ársreikningur ársins 2009.
- Tryggingafræðileg úttekt.
- Fjárfestingarstefna sjóðsins.
- Tillaga um breytingu á samþykktum.
- Tillaga um breytingu á réttindum.
- Kosning stjórnar.
- Ákvörðun launa stjórnarmanna.
- Önnur mál löglega uppborin.
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðandi sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundi með málfelsi og tillögurétti. Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta sér rétt sinn og mæta á ársfund sjóðsins, en eru beðnir að staðfesta þátttöku sína við skrifstofu sjóðsins í síðasta lagi 12. maí 2010.
Sérstakt fulltrúaráð að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekanda sem að sjóðnum standa fer með atkvæði á ársfundinum.
Stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga
Lífeyrissjóður Vestfirðinga sími 4564176, Fax 4564710
Netföng: afgr@lvest.is gudrun@lvest.is
