Nýlega samþykkti Alþingi lög sem miða að því að gera þeim einstaklingum sem gátu staðið við skuldbindingar sínar fyrir bankahrunið kleift að gera það áfram. Meðal annars lækkar greiðslubyrði lána með greiðslujöfnun og sett er þak á lengingu lána sem kann að verða til vegna greiðslujöfnunar.
Greiðslujöfnun verður sjálfkrafa sett á öll verðtryggð fasteignalán frá og með gjalddaga í desember 2009. Áætlað er að með greiðslujöfnun muni greiðslubyrði lækka um allt að 17% en greiðslubyrði er mismunandi eftir eðli lána og ákvæðum í lánasamningum.
Þeir sem ekki vilja fá greiðslujöfnun á lán sín verða að tilkynna það lánveitanda sínum eigi síðar en 20. nóvember 2009. Eftir að lán er komið í greiðslujöfnun getur lántaki sagt sig frá henni með tilkynningu til lánveitanda í síðasta lagi 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins. Þessar tilkynningar má senda rafrænt með eyðublöðum á vefsíðum og í heimabönkum viðkomandi lánveitanda, auk þess sem hægt er að hafa samband beint við lánveitanda.
Hér er eyðublað sem hægt er að fylla út, prenta, undirrita og myndsenda það eða koma því til skrifstofu sjóðsins að Hafnarstræti 9 á Ísafirði.
Skilyrði fyrir greiðslujöfnun fasteignalána er að lánin séu í skilum. Ef lán er í vanskilum þarf að leita til lánveitanda. Lán sem eru nú þegar í frystingu teljast vera í skilum og því fara þau sjálfkrafa í greiðslujöfnun þegar frystingin rennur út.
Nánari upplýsingar um greiðslujöfnun er að finna á heimasíðum Íbúðalánasjóðs, banka, sparisjóða og lífeyrissjóða og á www.island.is/endurreisn.
Kostir greiðslujöfnunar
- Léttari greiðslubyrði á erfiðum tímum í efnahagslífi Íslendinga
- Greiðslubyrði líklegri til haldast betur í hendur við greiðslugetu þína til framtíðar
- Ef þú greiðir áfram samkvæmt greiðslujöfnunarvísitölu þrátt fyrir að neysluverðsvísitalan verði hagstæðari þá styttist lánstíminn
- Kostar ekkert og hægt er að segja greiðslujöfnuninni upp hvenær sem er
Ókostir greiðslujöfnunar
- Möguleiki á að lán lengist en þó aldrei lengur en sem nemur þremur árum af upprunalegum lánstíma
- Lengist lánstíminn felur það í sér hærri kostnað í formi vaxta og verðbóta
- Eignarmyndun í húsnæði getur orðið hægari til skamms tíma
Starfsfólk Lífeyrissjóðs Vestfirðinga veitir allar nánari upplýsingar:
Sími 4564233
Fax 4564170
Netfang afgr@lvest.is
Heimasíða www.lvest.is
