Sjóðurinn
Sjóðurinn

Sjóðurinn
Skrifstofan er til húsa að Hafnarstræti 9 á Ísafirði.
Skrifstofa sjóðsins er opin daglega frá kl. 8.00 til kl. 16.00.

Sími: 456-4233 • Fax: 456-4710
Netfang fyrir skilagreina og almenna fyrirspurnir er afgr@lvest.is. Sjá einnig hér.

Hlutverk
Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum lífeyri í samræmi við samþykktir sjóðsins. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrissréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997, reglugerð nr. 698/1998 og á grundvelli samkomulags stéttarfélaga og atvinnurekenda frá 19. maí 1969 og 12. desember 1995.

Merki sjóðsins
Merki Lífeyrissjóðs Vestfirðinga er laufblað sem er tákn fyrir lífið og um leið fyrirhyggju fólks sem ræktar garðinn sinn. Skógur eða trjálundur veitir skjól fyrir veðri og vindum og sama er hægt að segja um þann lífeyri sem við leggjum til hliðar og þurfum að sækja í síðar á lífsleiðinni. Með því að leggja fjármuni í lífeyrissjóð erum við um leið að undirbúa ævikvöldið og uppskerum eins og sáð er til.